Skilmálar
Þjónustan
Útboðsvakt fylgist með Útboðsvefnum og TED (útboðsvefur Evrópusambandsins) og sendir tölvupóst þegar nýtt útboð passar við leitina. Þjónustan skrifar ekki tilboð, metur ekki útboð og sendir ekki gögn inn í innkaupakerfi. Útboð eru athuguð alla virka daga kl. 8.
Prufa og greiðsla
Nýr aðgangur er ókeypis í 14 daga. Að þeim tíma liðnum kostar leitin 13.990 kr. á mánuði. Greitt er með reikningi. Segja má upp hvenær sem er; aðgangur helst út þann tíma sem þegar er greiddur.
Notkun
Aðgangur er persónulegur og ekki framseljanlegur. Óheimilt er að misnota þjónustuna, deila aðgangi eða sækja efni sem er á bak við innskráningu í öðrum kerfum.
Heimildir
Útboðsvakt afritar opinberar tilkynningar. TED og Útboðsvefurinn bera ábyrgð á því að upprunagögnin séu rétt. Útboðsvakt ber ekki ábyrgð á villum, töfum eða eyðum í þeim tilkynningum.
Tengiliður
Þjónustuveitandi: Infinity Capital ehf., Hafnarbraut 8, 200 Kópavogi.